30 - Hólmahylur
Fallegur, hæfilega stór veiðistaður með þokkalegum straumi efst og lygnri breiðu neðst og dýpi í miðri ánni. Austurbakkinn er malareyri, en vesturbakkinn brattur melhóll efst og grasbakki neðantil með grýttri fjöru. Vestantil þarf að gæta nokkuð að bakkastinu. Þarna má veiða beggja vegna og nota ég mér það og hef fengið flesta fiskana um efri hluta staðarins. (-ES-)