Við notum vafrakökur til að greina upplýsingar um notkun vefsíðunnar til að bæta efni og birta markaðsefni. Nánar um vafrakökur LEYFA VAFRAKÖKUR

24.7.2026 - Klakkistur komnar í Fnjóská


Klakkistur komnar í Fnjóská

Klakkistur hafa nú verið settar niður í Fnjóská og líkt og undanfarin ár biðjum við veiðimenn að veita okkur lið við öflun klaklaxa. Upplýsingar um staðsetningu kistanna má finna hér fyrir neðan.

Græna karið við Draflastaði

Þeir sem veiða lax til klaks skammt frá Draflastöðum eru vinsamlegast beðnir um að setja fiskinn beint í græna karið fremur en í klakkistu. Mun betur fer um fiskinn í karinu og minni hætta er á að hann skaðist. Jafnframt þarf þá ekki að meðhöndla fiskinn aftur við flutning úr klakkistu yfir í karið. Munið að skrá í veiðibókina þegar lax er settur í klak. Undir valmöguleikanum „Sleppt“ er hægt að velja „Já“, „Nei“ eða „Klak“.

Akið varlega um hlaðið í Nesi

Við viljum einnig beina þeim vinsamlegu tilmælum til veiðimanna að aka hægt og varlega í gegnum hlaðið í Nesi. Þar eru börn oft að leik og á reiðhjólum á heimreiðinni. Ökumenn eru því beðnir um að sýna sérstaka aðgát og virða að svæðið er að hluta til leiksvæði barna.

Staðsetningar klakkista

  • Árbugsárós – austan megin
  • Sandur – vestan megin
  • Eyrarbreiða – austan megin
  • Vatnsleysuhylur – vestan megin
  • Flúðir – austan megin
  • Systrahvammur – vestan megin

Við þökkum veiðimönnum kærlega fyrir aðstoðina og gott samstarf.