Klakfiskar
Nú er staðan sú að kominn er nægur fjöldi hrygna í klak og því ekki þörf á fleirum. Hrygnum sem veiðast má því sleppa aftur í ána.
Hins vegar væri mjög gott að fá 4–5 fallega hænga til viðbótar núna á haustdögum.
Við þökkum þeim veiðimönnum sem hafa lagt til veiddan fisk í klak kærlega fyrir aðstoðina.
Eins og áður bendum við á að ef fallegur hængur veiðist á svæðinu ekki langt frá Draflastöðum er best að setja hann í græna karið.