Fnjóská - Bleiksmýrardalur (Silungur)
Fnjóská er 117 km löng bergvatnsá sem á upptök sín í Bleiksmýrardrögum og er ein vatnsmesta bergvatnsá landsins. Lax og sjóbleikja eru uppistaðan í veiðinni, en einnig veiðast í ánni urriði og staðbundin bleikja.
Bleiksmýrardalur er efsta veiðisvæði Fnjóskár og hefst á móts við bæinn Reyki, skammt ofan ármóta Bakkaár og Fnjóskár, þar sem áin leitar inn í vestasta afdal Fnjóskadals, hinn langa og afskekkta dal þar sem hún á upptök sín.
Svæðið er fyrst og fremst silungasvæði þar sem umhverfið er víðáttumikið, kyrrlátt og afskekkt, og hentar vel þeim sem vilja létta og rólega fluguveiði í fallegri náttúru.
Veiðileyfi fyrir sumarið 2026 verða ekki í almennri sölu en félagsmenn sem hafa áhuga á svæðinu geta haft samband við stjórn og óskað eftir að veiðileyfi.
Veiðireglur
Eingöngu er heimilt að veiða á flugu með flugustöng.
Öllum laxi, bleikju og sjóbirtingi skal sleppt aftur.
Veiðimönnum er heimilt að taka staðbundinn urriða í soðið.
Veiðitími dagsins er frjáls, en hann er að hámarki 12 klukkustundir á bilinu kl. 07:00–22:00 á veiðidegi.
Veiðihús
Ekkert veiðihús fylgir veiðileyfum á Bleiksmýrardalssvæðinu.
Annað
Veiðimenn eru beðnir um að loka alltaf hliðum á eftir sér og aka ekki um tún eða ótroðnar slóðir nema með leyfi landeigenda. Einnig eru veiðimenn beðnir um að sýna landeigendum og öðrum veiðimönnum tillitssemi, ganga vel um landið og skilja ekki eftir rusl við ána.
Skilmálar
Kaupendur veiðileyfa skuldbinda sig til að fylgja veiði- og umgengnisreglum og skrá alla veiði í rafræna veiðibók á heimasíðu okkar. Veiðileyfi eru ekki endurgreidd.