Við notum vafrakökur til að greina upplýsingar um notkun vefsíðunnar til að bæta efni og birta markaðsefni. Nánar um vafrakökur LEYFA VAFRAKÖKUR
Fnjóská

Fnjóská - Lax- og silungsveiði í frábæru umhverfi


Fnjóská er 117 km löng bergvatnsá sem á upptök sín í Bleiksmýrardrögum og er ein vatnsmesta bergvatnsá landsins. Lax og sjóbleikja eru uppistaðan í veiðinni, en einnig veiðast í ánni urriði og staðbundin bleikja.

Veiðitímabilið hefst 18. júní og stendur til 18. september. Göngur eru jafnan mestar um miðbik og seinni hluta júlímánaðar. Veiðistaðir í Fnjóská eru flestir stórir og víðáttumiklir, með jöfnu rennsli en jafnframt miklum straumi, sem gerir ána að frábærri fluguveiðiá.

Stangaveiðifélagið Flúðir á Akureyri hefur haft Fnjóská á leigu óslitið síðan 1969.


Veiðireglur

Á svæðum 1–4 er leyfilegt að veiða á flugu og spón til hádegis 1. ágúst. Frá hádegi 1. ágúst er aðeins heimilt að veiða á flugu með flugustöng á svæðum 1–4 og gildir það fyrirkomulag til lokunar árinnar.

Öllum laxi yfir 65 cm skal sleppt eða hann settur í klakkistu.

Til hádegis 11. ágúst er heimilt á svæðum 1–4 að hirða einn lax, 65 cm eða minni, á hverjum hálfum degi. Eftir það má eingöngu veiða á flugu og skal öllum laxi sleppt eða hann settur í klakkistu. Athugið að hvorki er heimilt að flytja þennan kvóta á milli svæða né á milli stanga.

Eftir hádegi 11. ágúst og út veiðitímann skal öllum laxi sleppt eða hann settur í klakkistu.

Öllum bleikjum og sjóbirtingi skal sleppt aftur og gildir það um allt veiðitímabilið.

Ekki eru takmörk á staðbundnum urriða og mega veiðimenn gjarnan hirða hann í soðið. Ekki er leyfilegt að sleppa hnúðlaxi eða laxi úr sjókvíaeldi aftur í ána.

Veiðitími: Veiðitími morgunvaktar er frá kl. 07:00–13:00. Veiðitími kvöldvaktar er frá kl. 16:00–22:00 til og með 10. ágúst. Eftir það er kvöldvaktin frá kl. 15:00–21:00.


Veiðihús

Veiðihúsin eru staðsett við Flúðasel. Veiðimenn sjá um sig sjálfir með mat, rúmföt, handklæði og þess háttar. Veiðihúsin eru eingöngu fyrir veiðimenn á svæðum 1–4 og heimilt er að nýta tvö svefnpláss fyrir hverja stöng. Athugið að ekki má fara inn í veiðihúsin fyrr en 30 mínútum fyrir veiðitíma og gestir þurfa að vera búnir að rýma og skila af sér veiðihúsi 30 mínútum eftir að veiðitíma lýkur. 

Hundar eru velkomnir á svæðið en ekki er leyfilegt að hafa þá inni í veiðihúsunum. Heimilt er að láta þá sofa í laxageymslu og vöðlugeymslu.

Munið að tæma heita pottinn eftir notkun.

Ekið er austur þjóðveg 1 frá Akureyri þar til komið er yfir brúna neðan Vaglaskógar. Stuttu eftir að ekið er yfir brúna er beygt til vinstri niður Fnjóskadal. Veiðihúsin eru um það bil 5 km frá gatnamótunum, á hægri hönd, við afleggjara merktan Flúðum.


Annað

Veiðimenn eru beðnir um að loka alltaf hliðum á eftir sér og aka ekki um tún eða ótroðnar slóðir nema með leyfi landeigenda. Einnig eru veiðimenn beðnir um að sýna landeigendum og öðrum veiðimönnum tillitssemi, ganga vel um landið og skilja ekki eftir rusl við ána.


Skilmálar

Kaupendur veiðileyfa skuldbinda sig til að fylgja veiði- og umgengnisreglum og skrá alla veiði í rafræna veiðibók á heimasíðu okkar. Veiðileyfi eru ekki endurgreidd.